Framhaldsnámskeið 2 eru fyrir börn sem hafa sótt tvö til þrjú námskeið áður og hafa reynslu af hestamennsku.
Á þessu námskeiði er farið í mun lengri reiðtúra en á Framhaldi 1 og meiri kröfur gerðar til ásetu, stjórnunar og jafnvægis. Farið er í skemmtilega reiðtúra í t.d. inn í Heiðmörk, niður í Elliðaárdalinn og í kringum Rauðavatn.
Afsláttur: Veittur er 5% afsláttur af námskeiðsgjaldi þegar bókuð eru 2 námskeið eða fleiri í sömu pöntuninni. Þannig geta systkini fengið afslátt af námskeiði og börn sem bóka fleiri en eitt námskeið í einu. Til þess að virkja systkinaafsláttinn er settur inn afsláttarkóðinn; sumar2023
*Uppselt er á öll námskeið sumarssins, sendið póst á reidskoli@reidskoli.is ef þið viljið komast á biðlista.